Hæhæ - ákvað að skrá inn nýja færslu, voru komin milljón komment á
hina og tók langan tíma að lesa!
Heyriði, þá eru litlu jólin í Keflavík í kvöld, hjá Elfu. Hér er
smá samantekt:
- Allir að koma með jólapakka fyrir c.a. 500 kall
- Allir (sem geta) að koma með einhverjar smá veitingar. Mín
uppástunga er að litlujólahaldarinn, í þessu tilfelli Elfa - sjái
um kakó, malt og appelsín eða hvað sem fólk vill drekka (eða
frekar hvað hún vill hafa í boði) og við hin komum með eitthvað að
borða með. Þannig að Elfa greyið sé ekki að græja neitt, bara kaupa
drykki...that´s enough! Eruð þið sammála mér (eruð þið ekki
alltaf sammála mér

? )
- Mæting klukkan átta, ekki seinna því þá er Elfa farin að
hátta.... neinei, bara grín, fannst þetta bara ríma svo vel. En
reynum samt að vera komin um átta í síðasta lagi ef við getum, svo
við náum að spjalla svolítið saman
- Kolla kemst ekki - ákvað frekar að hitta annað fólk!
- ...ég hlakka til að sjá ykkur ; )
- Er þetta þá ekki komið? -
Kveðja
Særún
